Á aðalfundir Heyrnarhjálpar þann 24 maí síðast liðin var kosið um stjórn eins og lög félagsins gera ráð fyrir. Halla B. Þorkelsson var kjörin formaður félagins. Í aðalstjórn voru kjörin Bergþóra Kristín Benediktsdóttir, Ingólfur Már Magnússon, Kristín Margrét Bjarnadóttir og Stefán Benediktsson. Í varastjórn voru kjörin Sigrún Magnúsdóttir og Telma Sigtryggsdóttir.
Á stjórnarfundi þann 5 júní kaus stjórn Bergþóru Kristínu Benediktsdóttur sem varaformann, Kristínu Margréti Bjarnadóttur sem gjaldkera félagsins.