Aðalfundur Heyrnarhjálpar verður haldinn í Mannréttindahúsi (Sigtún 42) þann 28. maí næstkomandi. Góðar veitingar verða í boði og öll eru velkomin, við hlökkum til að sjá ykkur sem flest!
Dagskrá aðalfundarins er svohljóðandi:
- Formaður setur fund og fer yfir dagskrá
- Fundarstjóri er tilnefndur
- Ritari er tilnefndur
- Ársskýrsla lögð fram af stjórn og endurskoðaðir reikningar síðasta árs
- Kjör formanns
- Kjör tveggja meðstjórnenda
- Önnur mál
Heyrnarheilsa skiptir meiru máli en marga grunar – Heyrum alla ævi!