Það gladdi okkur mikið hjá Heyrnarhjálp þegar okkur var tjáð að nýja íslenska myndin Leynilögga yrði sýnd með íslenskum texta í Sambíóunum Álfabakka, Akureyri og Keflavík dagana 19. nóv til 9. des. Við hvetjum félaga okkar að nýta tækifærið og fara í bíó!
Við þökkum Pegasus og Sambíóunum kærlega fyrir að brjóta múra í aðgengismálum heyrnarskerta.
Hér er linkur á lýsingu á myndinni fyrir áhugasama: Leynilögga